Sláturtíð, tónlistarhátíð S.L.Á.T.U.R. samtakanna verður haldin í Hafnarhúsinu dagana 9. til 11. október.
Sérstök opnunarathöfn fer fram kl 20:00 á fimmtudagskvöldið, þar sem norska hljómsveitin Toyen Fil og Klafferi kemur fram, gjörningar verða gerðir og nýr sláturtíðardrykkur drukkinn.
Samhliða Sláturtíð verður haldin keppni í myndlist: Keppnin um Keppinn. Öllum er frjálst að taka þátt með því að senda myndlistaverk í keppnina. Verkin verða boðin upp og höfundur dýrasta verksins vinnur.
S.L.Á.T.U.R. fagnar nýju ári með sérstökum hátíðartónleikum í Mengi, nýjum tónleikastað við Óðinsgötu (nr. 2) kl 21:00, föstukvöldið 10. janúar. 2000 kr aðgangseyrir.
Á Nýárstónleikum S.L.Á.T.U.R. 2014 verður flutt glæný tónlist fyrir klarinettur sem hafa verið undirbúnar sérstaklega, breyttar og endurhannaðar til að kalla fram nýjan hljóðblæ, nýjar stillingar og framlengja möguleika hljóðfærisins. Klarinettan hefur lengi þótt seiðandi og kyngimagnað hljóðfæri vegna hins sérstaka hljóðs sem hún framkallar. Yfirtónaröð klarinettunnar er einstök í hópi blásturshljóðfæra og tæknilegir möguleikar hljóðfærisins varðandi tón- og styrkleikasvið eiga sér fáa jafningja. Hins vegar hefur lítið verið gert í að breyta og bæta klarinettuna. Málmblásturshljóðfæri nota dempara og frægt er hið ‘undirbúna’ píanó sem notar ýmis áhöld til að breyta tónum hljóðfærisins. Á nýárstónleikunum munu tónskáld S.L.Á.T.U.R. hins vegar vinna með þann efnivið sem klarinettan er og umbreyta eða umbylta gerð hljóðfærisins og virkni. Meðal annars verður notast við nýjar þrívíddarprentaðar baulur sem eru í þróun hjá Hljóðrannsóknarstofu LornaLab.
Fjórir klarinettuleikarar munu flytja tónlistina sem verður fjölbreytt og fjölvíð.
Sláturtíðin í ár verður haldin 16.-20. október næstkomandi. Þar verður margt um dýrðir og að venju verða flutt ný íslensk tónverk ásamt því nýjasta sem gengur og gerist í ágengri tónlist útlanda. Tónlistarhátíðin Sláturtíð er sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Á hátíðinni er áhersla lögð á listræna ágengni á sem flestum sviðum tónlistarinnar: framsetningu, rithætti, hljóðvist, flutningi, hljóðfærasmíð og tengingu við aðrar víddir menningar og hugsunar.
Áki Ásgeirsson, Jesper Pedersen og Magnús Jensson standa fyrir innsetningu í Strætisvögnum á Safnanótt, 8.febrúar, milli kl 20:00-23:00. Verkið er hluti af Vetrarhátíð og miðar að því að skapa sýndarrými í tveim strætisvögum sem eru samtengdir í rauntíma. http://www.vetrarhatid.is/
Samtök Listrænt Ágengra Tónsmiða Umhverfis Reykjavík (S.L.Á.T.U.R) fagnar nýju ári með sínum árlegu Nýárstónleikum þar sem nýju ári er fagnað með nýjum verkum meðlima samtakanna. Verkin á tónleikunum eru samin fyrir Harmóníum (ísl. Orgvél / Orgel ) í flutningi Tinnu Þorsteinsdóttur, píanista. Tónleikarnir eru stofutónleikar og fara fram í heimahúsi að Holtsgötu 6, 101 Reykjavík.
Ókeypis er inn á tónleikana og allir velkomnir!
…
Tinna Þorsteinsdóttir, píanisti er með víðtæka reynslu á sviði nýrrar tónlistar og hefur frumflutt um 40 píanóverk sem samin hafa verið fyrir hana síðastliðin ár. Hún vinnur náið með mörgum íslenskum tónskáldum, er liðtæk í tilraunatónlistarsenunni og hefur unnið með tónskáldum eins og Helmut Lachenmann, Morton Subotnick, Evan Ziporyn, Christian Wolff og Greg Davis.
Tónverk eftir nokkra S.L.Á.T.U.R. meðlimi verða flutt á Norðurljósatvíæringnum í Berlínarborg þann 28. september næstkomandi.
Flytjendur eru tónlistarhópurinn Adapter: http://www.ensemble-adapter.de/
Tónsmíðavika SLÁTUR er haldin vikuna 23. júlí til 28. júlí.
Að þessu sinni verður vettvangurinn Lágmenningarmiðstöðin á Hnúki í Klofningshreppi. Rannsóknir verða stundaðar af SLÁTUR meðlimum í vikunni og niðurstöður kynntar laugardaginn 28. júlí í lágmenningarmiðstöðinni: http://ja.is/kort/#q=hn%C3%BAkslandi&x=336699&y=526088&z=3
Gestir eru hvattir til að taka með sér mat á grillið.