Keppnin um Keppinn 2009

keppurinn1Á tónlistarhátíðinni Sláturtíð sem haldin verður 15-17 október næstkomandi fer fram KEPPNIN UM KEPPINN. Keppurinn sem um ræðir er farandbikar SLÁTUR samtakanna og var steyptur af Jóni Kristjánssyni hjá Járnsteypu Héðins í gegnheilt járn eftir kepp sem soðinn var af Elínu Sigríði Konráðsdóttur og Önnu Kristínu Gunnarsdóttur. Keppurinn var veittur fyrst árið 2008, þá til Áka Ásgeirssonar fyrir fyrstu verðlaun í marsakeppni SLÁTUR.

Næsta keppskeppni verður ÍÞRÓTTAKEPPNI. Allir geta tekið þátt og felst keppnin í að búa til nýja íþrótt. Íþróttahöfundar mega senda inn hámark eina ýtarlega lýsingu á nýrri íþróttagrein og keppnishaldarar leggja til hóp fjölhæfra íþróttaflytjenda að hámarki tuttugu og einum. Einstaklingsíþróttir eru að sjálfsögðu leyfilegar. Hugsanlegan aukabúnað og tæki þurfa höfundar að koma með sjálfir. Skilafrestur að senda inn lýsingu á íþróttagreinum rennur út þann 5. október kl. 16:00. Þá mun fara fram forval og verður tilkynnt hvort íþróttin verði flutt á Sláturtíð eða ekki fyrir 9. október.

Nánari upplýsingar veitir stjórn SLÁTUR með tölvupósti: s l a t u r @ s l a t u r . i s

SLÁTUR óskar einnig eftir íþróttaflytjendum til að taka þátt í keppninni. Flytjendur þurfa að vera vel með farnir, með góða stemmingu og fljótir að læra nýjar íþróttir.

—————————

SLÁTUR Competition for the creation of new sports!

For information, please send mail to s l a t u r @ s l a t u r . i s

Deadline: 2nd of october.

2 comments to Keppnin um Keppinn 2009

  • Anna

    Það þarf nú aðeins meira til að búa til kepp heldur en að sjóða hann….svo sýnist mér af handbragðinu að þessi keppur hafi verið saumaður af rétthentri manneskju… ;)

  • aki

    Jú vissulega var hann klipptur, saumaður og úttroðinn af sömu sómakonum. Afsteypan gerði þó útaf við greyið…

Leave a Reply

  

  

  

You can use these HTML tags

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>