Sláturtíð 2014

Sláturtíð, tónlistarhátíð S.L.Á.T.U.R. samtakanna verður haldin í Hafnarhúsinu dagana 9. til 11. október.

Sérstök opnunarathöfn fer fram kl 20:00 á fimmtudagskvöldið, þar sem norska hljómsveitin Toyen Fil og Klafferi kemur fram, gjörningar verða gerðir og nýr sláturtíðardrykkur drukkinn.

Samhliða Sláturtíð verður haldin keppni í myndlist: Keppnin um Keppinn.  Öllum er frjálst að taka þátt með því að senda myndlistaverk í keppnina.  Verkin verða boðin upp og höfundur dýrasta verksins vinnur.

Dagskrá er að finna á www.slatur.is/slaturtid-2014

https://www.facebook.com/events/367774673372478/