Nýárstónleikar


S.L.Á.T.U.R. fagnar nýju ári með sérstökum hátíðartónleikum í Mengi, nýjum tónleikastað við Óðinsgötu (nr. 2) kl 21:00, föstukvöldið 10. janúar.  2000 kr aðgangseyrir.

Á Nýárstónleikum S.L.Á.T.U.R. 2014  verður flutt glæný tónlist fyrir klarinettur sem hafa verið undirbúnar sérstaklega, breyttar og endurhannaðar til að kalla fram nýjan hljóðblæ, nýjar stillingar og framlengja möguleika hljóðfærisins.  Klarinettan hefur lengi þótt seiðandi og kyngimagnað hljóðfæri vegna hins sérstaka hljóðs sem hún framkallar.  Yfirtónaröð klarinettunnar er einstök í hópi blásturshljóðfæra og tæknilegir möguleikar hljóðfærisins varðandi tón- og styrkleikasvið eiga sér fáa jafningja.  Hins vegar hefur lítið verið gert í að breyta og bæta klarinettuna.  Málmblásturshljóðfæri nota dempara og frægt er hið ‘undirbúna’ píanó sem notar ýmis áhöld til að breyta tónum hljóðfærisins.  Á nýárstónleikunum munu tónskáld S.L.Á.T.U.R. hins vegar vinna með þann efnivið sem klarinettan er og umbreyta eða umbylta gerð hljóðfærisins og virkni.  Meðal annars verður notast við nýjar þrívíddarprentaðar baulur sem eru í þróun hjá Hljóðrannsóknarstofu LornaLab.

Fjórir klarinettuleikarar munu flytja tónlistina sem verður fjölbreytt og fjölvíð.