Sláturtíð 2013

Sláturtíðin í ár verður haldin 16.-20. október næstkomandi.  Þar verður margt um dýrðir og að venju verða flutt ný íslensk tónverk ásamt því nýjasta sem gengur og gerist í ágengri tónlist útlanda.  Tónlistarhátíðin Sláturtíð er sú eina sinnar tegundar á Íslandi.  Á hátíðinni er áhersla lögð á listræna ágengni á sem flestum sviðum tónlistarinnar: framsetningu, rithætti, hljóðvist, flutningi, hljóðfærasmíð og tengingu við aðrar víddir menningar og hugsunar.

Heimasíða hátíðarinnar er http://slatur.is/slaturtid/ og upplýsingar um dagskrána berast von bráðar…