April 2024
S M T W T F S
« Jan    
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
282930  

DÚNDUR & GRAPEVINE GRASSROOTS #10

Í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, verður haldið Sláturdúndur á Kaffi Kúltúr eða Cultura í kjallaranum klukkan 20:00. Sökum Sláturtíðar var ekki sláturdúndur í október en þann 1.nóvember var haldið sláturdúndur í Amsterdam í Hollandi í staðinn.

Sláturdúndur að þessu sinni verður með svipuðu móti og oft áður. Leikin verða verk á mismunandi tilverustigum, frumflutningar, forflutningar og útflutningar.

SVO

upp úr kl 21:00 troða Páll Ivan Pálsson og Guðmundur Steinn Gunnarsson upp á tíunda Grapevine Grassroots kvöldinu sem haldið er á Hemma & Valda á laugavegi.  Þar koma einnig fram ÖZZ frá Noregi og stórsveitin Múkkaló.

Hlökkum til að sjá sem flesta á báðum stöðum!

Harpverk tónleikar á mánukvöld

harpverk

Mánukvöldið 16. nóvember mun tvíeykið Duo Harpverk sem samanstendur af hörpuleikaranum Katie Buckley og slagverksleikaranum Frank Aarnink flytja verk eftir SLÁTUR meðlimi auk óbreyttra tónskálda, inn- og erlendra, lifandi og látinna.
Eins og segir á facebook síðu Harpverks:

Rosenberg goes Classic.
Or Harpverk goes Jazz?

New pieces by Karen Heath(Australia),Jesper Pedersen(Ísland?)and Guðmundur Steinn(litla Steini)
And lots of old pieces by:
Oliver,Anna,Daniel,Bára,Jónas,Jenny,Piazzolla.

500 kall sedill til að komast inn!

Sláturdúndur í Amsterdam

Næsta Sláturdúndur verður haldið í Amsterdam í samstarfi við IADA – iceland art & design amsterdam sunnudaginn 1sta nóvember klukkan 16:30 í Gallery HOT ICE , Westergasfabriek, Polonceau-kade 10 í Amsterdam, höfuðborg Niðurlanda.
Fram koma Ari Hróðmarsson, Ingi Garðar Erlendsson og Þráinn Hjálmarsson.
Áhugasamir sláturfélagar eru beðnir um að tilkynna þáttöku sem fyrst.

S.L.Á.T.U.R. Dúndur will be held at Gallery HOT ICE in Amsterdam on November 1st at 16.30. S.L.Á.T.U.R Dúndur is a type of concerts where participants for this concerts compose a piece with a really short time notice, the pieces might end up not in their their final version and may therefor be just a glimpse of an idea that people are thinking and presenting in this concert, but as well may be thoroughly composed and in their final version. Dúndur is held monthly by the S.L.Á.T.U.R group in Iceland.

hot-ice

Sláturtíð 2009

Fimmtudagur 15 október, tónleikar kl 20:00 í Fríkirkjunni

Verk eftir Þorkel Atlason, Jesper Pedersen, Áka Ásgeirsson, Hallvarð Ásgeirsson, Andre Vida og Matthew Shlomovitz.

Föstudagur 16 október, tónleikar kl 20:00 í Skemmtihúsinu, Laufásvegi 22
Verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson og Sally Ann Duke. Flytjendur eru Frank Arnink, Tinna Þorsteinsdóttir og Grímur Helgason.

Laugardagur 17 október, Keppnin um Keppinn – Íþróttakeppni S.L.Á.T.U.R., kl 15:00 í Hljómskálagarðinum

Laugardagur 17 október, tónleikar kl 20:30 í Fríkirkjunni
Verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Pál Ivan Pálsson, Hafdísi Bjarnadóttur, Magnús Jensson, Þráinn Hjálmarsson og Charles Ross. Flytjendur eru Frank Arnink, Tinna Þorsteinsdóttir, Camilla Barratt-Due, Róbert Reynisson, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir og fleiri.

Thursday 15th of october, concert at 20:00 in Fríkirkjan
Friday 16th of october, concert at 20:00 in Skemmtihúsið, on Laufásvegur 22
Saturday 17th of october, sports competition in Hljómskálagarður at 15:00
Saturday 17th of october, concert at 20:30 in Fríkirkjan

S.L.Á.T.U.R Tónleikar í Norræna Húsinu

slaturveggspjald2Laugardaginn 5. september lýkur S.L.Á.T.U.R (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) tónleikaferð sinni um Norðurlöndin með tónleikum hér á landi í Norræna húsinu í Reykjavík, tónleikarnir hefjast kl.20:30.

Flutt verða 8 verk eftir jafnmörg tónskáld, flytjendur verkanna eru nokkrir
meðlimir samtakanna auk slagverksleikarans Frank Aarnink. Verkin á
tónleikunum voru sérstaklega samin fyrir þessa ferð samtakanna sem hófst í
lok júlí, haldnir hafa verið 5 tónleikar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og
eru tónleikarnir í Norræna húsinu lokahnykkurinn á ferðalaginu.

Flutt verða verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Guðmund Stein
Gunnarsson, Hlyn A. Vilmarsson, Inga Garðar Erlendsson, Jesper Pedersen, Pál
Ivan Pálsson og Þráin Hjálmarsson.

AÐGANGUR ÓKEYPIS!

S.L.Á.T.U.R Concert at the Nordic House

The Last concert in S.L.Á.T.U.R-Nordic-Tour will take place in the Nordic
House in Reykjavík, Saturday 5th of september at 20:30 pm.

8 pieces have been composed especially for this S.L.Á.T.U.R Nordic tour and
will be performed by some members of S.L.Á.T.U.R and the percussionist Frank
Aarnink.

The Tour has included performances in Norway, Finland and Danmark.

FREE ENTRANCE!

S.L.Á.T.U.R Tónleikar í Norræna Húsinu

Written by Áki Ásgeirsson miðvikudagur, 26 ágúst 2009

Image

Laugardaginn 5. september lýkur S.L.Á.T.U.R (Samtök listrænt ágengra

tónsmiða umhverfis Reykjavík) tónleikaferð sinni um Norðurlöndin með
tónleikum hér á landi í Norræna húsinu í Reykjavík, tónleikarnir hefjast kl.
20:30.

Flutt verða 8 verk eftir jafnmörg tónskáld, flytjendur verkanna eru nokkrir
meðlimir samtakanna auk slagverksleikarans Frank Aarnink. Verkin á
tónleikunum voru sérstaklega samin fyrir þessa ferð samtakanna sem hófst í
lok júlí, haldnir hafa verið 5 tónleikar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og
eru tónleikarnir í Norræna húsinu lokahnykkurinn á ferðalaginu.

Flutt verða verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Guðmund Stein
Gunnarsson, Hlyn A. Vilmarsson, Inga Garðar Erlendsson, Jesper Pedersen, Pál
Ivan Pálsson og Þráin Hjálmarsson.

AÐGANGUR ÓKEYPIS!
S.L.Á.T.U.R Concert at the Nordic House

The Last concert in S.L.Á.T.U.R-Nordic-Tour will take place in the Nordic
House in Reykjavík, Saturday 5th of september at 20:30 pm.

8 pieces have been composed especially for this S.L.Á.T.U.R Nordic tour 
and will be performed by some members of S.L.Á.T.U.R and the percussionist 
Frank Aarnink.

The Tour has included performances in Norway, Finland and Danmark.

FREE ENTRANCE!

SLÁTUR DÚNDUR / Hlustunarpartý

Föstudagskvöldið 31. júlí efnir S.L.Á.T.U.R til hlustunarpartýs vegna væntanlegrar plötu samtakanna. Hlustunarpartýið verður haldið á skemmtistaðnum *KARAMBA*, Laugavegi 22, kl. 20:00.
Platan verður þar spiluð í gegn og auk þess verða óvæntir atburðir að hætti dúndur-kvölda samtakanna.

Höfundar verkanna á plötunni eru:
* Páll Ivan Pálsson
* Ingi Garðar Erlendsson
* Jesper Pedersen
* Guðmundur Steinn Gunnarsson
* Áki Ásgeirsson
* Davíð Brynjar Franzson
* Þráinn Hjálmarsson
* Hlynur A. Vilmarsson

PLATAN ER VÆNTANLEG Í ÁGÚST-MÁNUÐI OG MUN FÁST Í ÖLLUM BETRI HLJÓMPLÖTUVERSLUNUM LANDSINS.

S.L.Á.T.U.R DÚNDR! á Kaffi Hljómalind

Á föstudagskvöldið næstkomandi, þann 26.júní verður haldið mánaðarlegt sláturdúndur. Það hefst klukkan 20:00 á Kaffi Hljómalind (Laugavegi 23). Eins og venja er gefa samtökin ekki upp dagskrána fyrirfram.

Ýmislegt er á döfinni hjá samtökunum á næstunni og verður kannski komið inn á það á dúndrinu.

Sem fyrr er sláturdúndur mánaðarleg tónleikar þar sem tónsmiðir samtakanna kynna ný verk. Stundum líkist þetta opinni vinnustofu, óformlegt og stemmningin létt. Tónverkin eru ólík að stærð og gerð. Sum verkin eru fullsköpuð meistaraverk, önnur eru nánast eins og tilraun sem mun birtast skýrar í næsta verki og annað eru atriði sem enginn mun nokkurn tímann verða vitni að aftur.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir,

kveðja,

S.L.Á.T.U.R.

Útskriftartónleikar á Kjarvalsstöðum

Written by �r�inn Hj�lmarsson
mánudagur, 11 maí 2009
Fimmtudagskvöldið 14. maí kl. 20 verða haldnir síðustu útskriftartónleikar Listaháskóla Íslands í Kjarvalsstöðum í Reykjavík, á efnisskrá eru tvö verk eftir útskriftarnemendur skólans, þá Ásgeir Aðalsteinsson, nýmiðlar og Þráin Hjálmarsson, tónsmíðar.

Dúett (2008-2009) eftir Ásgeir Aðalsteinsson – Frumflutningur
Flytjendur:
Kara Hergils Valdimarsdóttir, dansari
Rósa Ómarsdóttir, dansari

„Verkið er dúett saminn fyrir nýtt hljóðfæri sem samanstendur af myndavél og tölvuforriti. Með hjálp myndavélarinnar greinir forritið hreyfingarnar og staðsetningu flytjandans. Þannig leikur flytjandinn á tölvuhljóðfærið án þess að snerta það.“ – ÁA

/7 (Vor 2009) eftir Þráin Hjálmarsson – Frumflutningur
Flytjendur:
Hulda Jónsdóttir, fiðla
Sigrún Harðardóttir, fiðla
Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóla
Þórður Hermannsson, selló
Birgit Myschi, kontrabassi
Tinna Þorsteinsdóttir, píanó

Raflost 2009 5.-9.maí

Written by Þráinn Hjálmarsson
mánudagur, 04 maí 2009
Listahátíðin Raflost verður haldin í 3.sinn dagana 5.-9.maí næstkomandi. Þar kennir ýmissa grasa og má þar sjá og heyra dans, myndlist, tónlist og kvikmyndalist. Atburðir hátíðarinnar eiga það þó sameiginlegt að nýta, rafmagn, tölvur og aðrar tækninýjungar á skapandi hátt. Á hátíðinni koma fram listamenn frá ýmsum löndum og má því sjá hin ýmsu viðfangsefni sem borið hefur á í alþjóðlegum heimi raflista. Þannig verður hægt að sjá dansara stjórna rafhljóðum, kvikmyndir sem áhorfendur geta stýrt, beint samspil hljóðs og myndar, gagnvirkar innsetningar sem notast við gervigreind og margt fleira. Aðalgestir hátíðarinnar verða þeir Tomi Knuutila, Teijo Pellinen, Chris Hales, Þórhallur Magnússon og Davíð Brynjar Franzson. Einnig munu koma fram á hátíðinni ýmsir raflistamenn frá Lorna (http://pallit.lhi.is/pikslaverk/) , Raflistafélagi Íslands (http://www.raflost.is) og S.L.Á.T.U.R. (http://www.slatur.is).

Uppákomur
fimmtudagur
Cause & Effect (http://causeandeffect.tk/)
Á fimmtudagskvöldið 7.maí verður kvikmyndasýning á vegum hátíðarinnar í Regnboganum klukkan 20:00. Þar mun finnsk/breski listahópurinn Cause & Effect sýna gagnvirkar kvikmyndir í venjulegum bíósal. Kvikmyndasýningin verður með hefðbundnu sniði, fólki er ekki meinað að koma inn í salinn með popp og kók en þegar myndirnar hefjast eru áhorfendur þáttakendur í atburðarás myndanna. Cause & Effect hafa komið víða við og sýnt gagnvirkar kvikmyndir á hinum ýmsu alþjóðlegu hátíðum.

föstudagur
Raflosti
Á föstudagskvöldið 8.maí verður sýndur afrakstur námskeiðs sem fer fram alla vikuna. Uppákoman fer fram í myndlistardeild Lisaháskólans í Laugarnesi (laugarnesvegi 91). Þar munu íslenskir og erlendir nemendur á námskeiði hátíðarinnar sýna verk sem nota jafnt hreyfingu, mynd og hljóð í tilraunakenndum uppákomum. Þar má sjá afkvæmi listrænnar og tæknilegrar nýsköpunar , sem og afkvæmi ólíkra listgreina.

laugardagur
S.L.Á.T.U.R. – magn
Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík munu standa fyrir uppákomu í Vogum á Vatnsleysuströnd. Uppákoman fer fram í Hlöðunni klukkan 12:00 laugardaginn 9.maí. Þar er áheyrendum boðið að ganga inn á tilraunastofu í gamalli hlöðu sem var áður braggi. Þar verður notað mikið rafmagn í rými sem lekur og umfram allt mikið magn af upplýsingum. Í hálfa klukkustund býðst áheyrendum að verða vitni að mörgum samhliða straumum af upplýsingum.

Lorna
Í Listasafni Suðurnesja mun raflistafélagið Lorna halda sýningu klukkan 14:30 laugardaginn 9.maí. Þar munu Páll Thayer og Ragnar Helgi sýna ýmis rafræn listaverk. Þar munu tölvur leika veigamikið hlutverk og mismuandi stig gervigreindar. Gagnvirkar innsetningar og myndbandsverk verða sýnd.

Stórleikar
Á laugardagskvöldið 9.maí klukkan 20:00 verður haldin almenn uppskeruhátíð Raflost 2009 í Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13, bakvið hús Listaháskólans og Nemendaleikhússins. Þar munu koma fram allir helstu gestir hátíðarinnar, innlendir sem erlendir. Má þar nefna Þórhall Magnússon, Netsky, Hestbak, Ásgeir Aðalsteinsson og fleiri. Ýmsir fyrirlesarar og aðrir þáttakendur munu koma fram og eru sem fyrr framsæknar listir með miklu rafmagni í fyrirrúmi.

Fyrirlestrar
Allir fyrirlestrar verða í myndlistardeild Listaháskólans á Laugarnesvegi 91. Fyrirlestrarnir fara fram á ensku.
Þriðjudagur
16:00 Davíð Brynjar Franzson, tónskáld sem búsettur er í New York, heldur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: “óstöðugleiki yfirborðs, óbreyting byggingar”
Miðvikudagur
16:00 Chris Hales, meðlimur Cause & Effect heldur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: „samskipti við hreyfimyndir – hvernig og af hverju.“
Fimmtudagur
16:00 Margrét E. Ólafsdóttir, fagurfræðingur og meðlimur raflistafélagsins Lorna heldur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: „frá þáttöku til gagnvirkni.“
Föstudagur
13:00 Þórhallur Magnússon, tónlistarmaður og listheimspekingur heldur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: „Um þekkingarfræðileg verkfæri: Fyrirbærafræði hljóðfæra.“

Námskeið
Alla vikuna er haldið námskeið með nemendum úr finnskum listaháskólum og Listaháskóla Íslands. Námskeiðin fara fram í myndlistardeild Listaháskólans, lauganesvegi 91, frá 10:00 alla virka morgna hátíðarinnar. Niðurstaða námskeiðanna verður birt á uppákomunni Raflosti.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Steinn Gunnarsson í síma 845-0065 (gudmundursteinn (hjá) gmail.com ).
< einnig: Þráinn Hjálmarsson í síma 697-7611 —————————————————————————————— Um RAFLOST hátíðina almennt. RAFLOST er listahátíð fyrir alla list þar sem rafmagn og tækni er notuð í einhverri mynd, þ.e. tónlist, myndlist og hvaðeina annað sem notar rafmagn á einhverju stigi verksins. Hátíðin var haldin í fyrsta skipi í maí 2007 og samanstóð af fyrirlestrum og tónleikum með áherslu á nýjustu tækni í raftónlist. Fram komu annars vegar heimsþekktir evrópskir raftónlistarmenn og hins vegar nemendur í raftónlist og nýmiðlum frá Listaháskóla Íslands, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Háskólanum í Reykjavík. Árið 2008 var hátíðin haldin annað sinn. Þá var aðalgestur RAFLOSTS Morton Subotnick, einn þekktasti raftónlistarfrumkvöðull Bandaríkjanna (www.mortonsubotnick.com) Að auki var haldið námskeið í notkun rafskynjara til listsköpunar undir leiðsögn finnska margmiðlunarsérfræðingsins Teijo Pellinen. Á stórleikum RAFLOSTS komu fram hljómsveitirnar Hestbak og Netsky, Robot Opera Háskólans í Reykjavík var flutt auk verka nemenda áðurnefndra skóla. Í ár er ætlunin að fjölga gestum hátíðarinnar auk þess að fjölga samstarfsaðilum. Nú koma í fyrsta sinn nemendur erlendis frá til að taka þátt í námskeiðinu RAFLOSTA. Það verða nemendur í margmiðlun frá listaháskóla Lapplands í Rovaniemi og nemendur frá [Media-skólanum] í Helsinki. Markmið tónlistarhátíðarinnar Raflosts er að efla grasrót íslenskra raftónlistarmanna með því að kynna yngri kynslóðirnar fyrir nýjustu straumum erlendis frá og auka þeim þannig innblástur til afreka í framtíðinni. Um leið er þetta líka vettvangur fyrir íslensk raftónskáld að sýna hvað í þeim býr og hvetja þau til nýsköpunar. Hátíðin mun auka aðgengi og áhuga almennings á framsækinni raftónlist. Af henni hefur ekki verið nógu mikið framboð og er markmið hátíðarinnar að bæta úr því. Um leið verður stigið stórt skref til þess að auka fjölbreytni tónlistarlífsins í Reykjavík, enda er engin önnur árviss tónlistarhátíð í gangi sem helgar sig raftónlist eða raflistum yfir höfuð. Skipuleggjendur Raflosts eru: Áki Ásgeirsson Haraldur Karlsson Hilmar Þórðarson Ríkharður H. Friðriksson Samstarfsaðilar: Menntamálaráðuneytið Listaháskóli Íslands Tónlistarskóli Kópavogs Tónlistarskóli Reykjanesbæjar Háskólinn í Reykjavík Lapland University Helsinki … Turku … Lorna – Pikslaverk S.L.Á.T.U.R. DAMA Network Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Steinn Gunnarsson í síma 845-0065 (gudmundursteinn (hjá) gmail.com ). einnig: Þráinn Hjálmarsson í síma 697-7611